Drög að leyfi, samkvæmt 31. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012,
fyrir opin gögn frá Fjársýslu ríkisins
Höfð var hliðsjón af breska leyfinu „Open government licence“ http://www.nationalarchives.gov.uk/doc/open-government-licence/
Þú ert hvattur til að nota og endurnýta þær upplýsingar sem eru gerðar aðgengilegar samkvæmt þessu leyfi, að uppfylltum eftirfarandi skilmálum.
Notkun upplýsinga með þessu leyfi
Með notkun efnis sem hefur verið gert aðgengilegt samkvæmt þessu leyfi (hér eftir kallað „upplýsingarnar“) telst þú hafa samþykkt eftirfarandi skilmála og skilyrði.
Fjársýsla ríkisins gefur þér ótímabundið leyfi til varanlegrar notkunar upplýsinganna hvar sem er, án gjaldtöku og gefur eftir einkarétt sinn, sé honum til að dreifa, að uppfylltum skilyrðunum hér fyrir neðan.
Þetta leyfi skerðir ekki réttindi notenda skv. 2. kafla höfundalaga nr. 73/1972 um takmarkanir á höfundarétti.
Þú færð leyfi til að:
Þú verður, þegar þú gerir eitthvað af ofantöldu, að:
Gættu að því að:
Ef þú fylgir ekki þessum skilyrðum eru réttindi þín samkvæmt þessu leyfi sjálfkrafa afturkölluð.
Undantekningar
Þetta leyfir nær ekki til notkunar á:
Engin ábyrgð
Fjársýslan er undanskilin fyrirsvari, ábyrgð, skyldum og skaðabótum í tengslum við upplýsingarnar að því marki sem lög leyfa.
Fjársýslan ber ekki ábyrgð á neinum villum eða vanskráningu í upplýsingunum og skal ekki vera ábyrg fyrir neinu tapi, meiðslum eða skaða sem hlýst af notkun þeirra. Fjársýslan ábyrgist ekki áframhaldandi aðgengi að upplýsingunum.
Gildandi lög
Þetta leyfi er háð lögum í því lagaumhverfi þar sem upplýsingaveitandinn hefur aðsetur nema annað sé tekið fram af upplýsingaveitandanum.
Skilgreiningar
Í þessu leyfi hafa orðin hér fyrir neðan eftirfarandi merkingu:
„upplýsingar“
stendur fyrir þær upplýsingar sem falla undir höfundarétt eða vernd gagnagrunna (til dæmis bókmennta- eða listaverk, efnisinnihald, gögn eða frumkóta hugbúnaðar) sem eru gefin út samkvæmt skilmálum þessa leyfis.
„nota“
sem sagnorð, stendur fyrir framkvæmd þeirra aðgerða sem eru varðar með höfundarétti eða vernd gagnagrunna, hvort sem er með upprunalegum miðli eða öðrum miðli og felur í sér takmörkun á dreifingu, fjölfjöldun, aðlögun og breytingum sem eru tæknilega nauðsynlegar til notkunar með öðrum hætti eða á öðru sniði.
„þú“
stendur fyrir einstakling eða lögaðila eða hóp slíkra aðila sem fær þau réttindi sem leyfið veitir.